Guð blessi koffeinið
Ég veit ekki hvað er í gangi með Maríu Rún þessa dagana, hún vaknar hvert einasta kvöld eftir að hafa sofnað eins og engill, og vakir bara í svona 3 tíma! Í gær fylltist mælirinn, ég hélt hún væri hætt þessu en þá vaknaði hún kl.00.25 og var vakandi til 3 í nótt að sögn Leifs. Svo ég ákvað að við yrðum að vera svaka strangir og leiðinlegir foreldrar og alls ekki taka hana upp til að gefa henni eða neitt. Hún orgaði náttúrulega úr sér lungun, en það var nú ekki það versta. Það sem er erfiðast er nobody-loves-me-snöktið sem heyrist í svona 40 mínútur eftir að hún gefst upp á orginu. Þá er eins og það sé rifið úr manni hjartað og því hent í tætarann. En ég var of þreytt til að hlusta á þetta og sofnaði vært kl.2.Já, það er nýtt tímabil í mínu lífi núna. Ég er officially komin út á vinnumarkaðinn! Vuhú, kominn tími til. Ég var að skoða dagatalið fyrir 2006 í gær og bara... shitt hvað þetta er mikið af vinnudögum :( Mér leist eiginlega ekkert á þetta, en það hlýtur að venjast fljótt. En ég er semsagt frekar mygluð í vinnunni í dag, tók með extra mikið koffein í nesti til að halda mér gangandi. Maður hressist svosem við að vera í talningunum sem standa yfir núna, var einmitt að telja málverk áðan. Sá þá að ég hef nákvæmlega engan smekk fyrir listaverkum, hugsaði bara með mér "kostar þetta skítamix 350.000 krónur!? Kræst".
Eins og kannski sumir vita erum við Siggi bró að fara í nammibannskeppni núna strax eftir áramót. Þetta verður alvöru keppni, potturinn byrjar í 5.000 krónum og hækkar svo um 500 kall í hverri viku þar til 10.000 krónum er náð. Það eru veðbankar komnir í gang, mér í óhag svosem. Þeir vita það sem þekkja hann Sigga að hann er þrjóskari en höfuðpaurinn í því neðra þegar kemur að peningum. Svo hann ætlar að tækla keppnina á þrjóskunni einni saman. Ég hins vegar er búin að setja upp áætlanir og varaplön B, C og D til að halda mér við efnið. Mín sterka hlið eru áætlanir, ég elska áætlanir. Sérstaklega þær sem fela í sér daglegar skráningar, vikulegar mælingar og samanburði sem hægt er að setja upp í Excel... þannig að ég mun tolla inni allan tímann líka! Ef hvorugt okkar tapar förum við og kaupum okkur eitthvað í verðlaun fyrir 10.000 kall að 10 vikum liðnum.
Jæja, best að fara að gera skýrslu um málverkin.
Gréta.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home